Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2008

Veiði í stormi

Jæja þá er veiðiferðin í Grímsá lokið og gekk bara nokkuð vel allar stangir tóku fiska nema ein sem var fisklaus,af 8 stöngum sem eiga að vera í hollinu var ein sem kom ekki þannig þetta voru 7 stangir og voru þær með 53 laxa.

PICT1446Á okkar stöng sem við vorum með það er að segja ég og Kristján Jóhann var það 9 fiskar sem komu á land og af þeim fiskum voru þrír drepnir allir þessir fiskar komu í Neðri Gullberastaðastreng og á sömu fluguna míní sunray shadow.

En í Grímsá er mikið af fiski og er vel dreifður um alla á  og á mörgum stöðum er sýnd veiði en ekki gefinn,það svæði sem er mest inni er svæði 4 og svæði 3.

En það  sem gerðist í áni var það, að á síðasta degi kom þetta brjálaða veður  eða það vara bara stormur eins og spáin sagði til um og fórum við til veiða upp í dal við mjög misjafnar undirtektir veiðifélaga sem voru saman,en eins og alltaf þegar ég er við veiðar skal reynt að veiða sama hvernig veðrið er, við byrjuðum á svæði 3 í hyll sem heitir Kotakvörn en hann er einn af nafntoguðu stöðum í áni en þar fékk líka Gunnar Helgason sína drauma fiska eða það er að segja bryggjustólpa og viti menn EKKERT GERÐIST 

eftir það var farið  í Efra Garðarfljót því gefur oft fisk og var búið að vera líf þar allan túrinn hjá hinum félögunum og viti menn það reist en ekkert gerðist.

þá var tekið á það ráð að far í bíltúr til félaga okkar Ragnars og Reynis sem voru búnir að vera í Oddstaðarfljóti í allan morgun enda enda voru þeir einir með svæðið því að þeirra mótstöng mæti ekki á svæðið.

Þar skiptust menn á rigningu og roki ,tók ég þá að tali og ath hvort þeir  ætluðu ekki að fara niður  í gullberastaðastreng.það var fljót sagt í þeim báðum í kór Nei hér verðum við enda búnir að landa 3 fiskum og einn sjóbirting,  væri það í lagi að við mætum fara í strengina hjá ykkur spyrði ég já að sjálfsögðu var svarað þannig að stað var haldið með hraði enda fór bíllinn með hraði yfir með vindinn í rassgatið.kristj�n me� mar�ulaxinn

 Þegar að komið var á Neðri Gullberastaða streng var Kristján eldri  sendur út enda var hann sá sem var ekki kominn með fisk og það var ekki liðinn mínúta þegar hann setur í hann og landar þar á sunray shadow fallegum 61cm hæng næsta klukkutímann var allt að gerast,

en fiskur númer tvö var kominn á land tveimur mínútum eftir að Kristján  landaði hinum en til að gera langa sögu stutta tók ég þennan morgun fjóra af fimm fiskum sem komu á land hjá okkur þannig að þeir sem voru harðastir að kasta í brjáluðu veðri náðu fiskum.22juli_01

Þannig að gamla máltakið virkar  (Þeir fiska sem róa).

 kv Acefly 

 


Flugur til sölu

Jæja nú er hægt að kaupa mínar flugur sem ég hef notað í allmörg ár.

Þetta eru Laxaflugur og hafa verið leynivopn mín en eins og alltaf, þá eitthvað sem  maður heldur fyrir sjálfan sig svona í nokkur ár í viðbót.

Ef menn hafa áhuga þá endilega senda mér fyrirspurn og ég svara um hæl í veidari@gmail,com

'A næstunni munu koma myndir af flugum sem eru í boði en ef það er   eitthvað spes þá er það ekkert mál.

kv 

Acefly 

 


Höfundur

Ásgrímur Ari Jósefsson
Ásgrímur Ari Jósefsson

 heiti  ég og er forfallinn veiðimaður á flugustöng.Ég hef verið með flugustöng í hendi frá því ég mann eftir mér.

Er giftur Braghildi sif Matthíasdóttur við eigu tvo flotta stráka Jósef og Matta 



Um bloggið

Fluguveiði

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband