Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2008

Hítará 20júní-22júní

Þá er fyrsti laxatúrinn liðinn og var veðrið eins og á spáni í Ágúst sem sagt ekki gott til að fara að veiða Lax.

 Við Byrjuðum að stoppa í Langá til að ath hvort eitthvað væri komið af Laxi þar en ekkert sást í sjávarfossi og ekkert sást í Krókudíl en Myrkhyl sást einn.

               

PICT1329

Þegar við vorum búnir að skoða í Langá var för okkar heitið í Hítará en þar áttum við að veiða í tvo daga, það var dregið um svæði og fór það þannig að við áttum að byrja fyrir ofan brú, eins og alltaf þegar við förum til veiða er bara veitt á flugu.

Við vorum ekki að stressa okkur á því að veiða með látum fyrir ofan brú því að það er sagt að ekki sé mikið af fiski þar að fá á þessum tíma.danni a� kasta � H�tar�                                       

                                                                                                                                               Morguninn eftir áttum við fyrir neðan brú og fórum ég og Danni alveg neðst í Hítará og sáum við að það var eitthvað að ganga inn á flóðinu sem var kl 8:30 þannig að við vorum nokkuð bjartsýnir með að veiða Kverkina og Breiðuna enda kom það í ljós að það var kominn fiskur þangað þegar við byrjuðum þar kl 10:00 og rétt fyrir kl eitt tók einn í Kverkinni flugu sem heitir Toscana.

en eins og myndin sýnir þá var það tekið vel.Danni me� Fyrsta lax sumarsins        
 Eftir hádegi fórum við seint af stað enda áttum við fyrir ofan brú og ekki var mikið að gerast þar en samt sást fiskur í Grettisbæli og hylnum fyrir ofan brú.

Um Kvöldið eftir matinn var farið inn í stofu en eins og margir vita þá er einn besti hylurinn í Hítará er Breiðan og sést hann beint úr glugganum í stofunni þar vorum við fram til kl 02:30  og var komið meira líf í ána.

við vöknuðum snemma enda áttum við þann stað strax um morgunninn ég byrjaði  og setti undir litla rauða frances númer 16 en ekkert gekk þannig að það var sett undir kvart tommu fluga að nafni Homminn en ég er búin að veiða á hana sem hefðbundinn fluga í átta til tíu ár,

fyrir þennan túr bjó ég til túbuform af þessari flugu sem sett var undir og kastað á Breiðunna ekkert gerðist í fyrsta kasti en í því þriðja var tekið í eftir smá tíma kom fiskurinn á land tveggja punda bleikja.

Seinna um morgunninn í þessum sama hyl seti Kobbi frændi í góðan lax svona um 10 pund en eftir nokkra baráttu þá slapp hann enda laus tekinn í fremri skolti.

það eru fleiri myndir í albúminu veiðimyndir.

Kveðja Acefly

og veiðihópurinn FLY ONLY 

acefly.blog.is

 

 


Höfundur

Ásgrímur Ari Jósefsson
Ásgrímur Ari Jósefsson

 heiti  ég og er forfallinn veiðimaður á flugustöng.Ég hef verið með flugustöng í hendi frá því ég mann eftir mér.

Er giftur Braghildi sif Matthíasdóttur við eigu tvo flotta stráka Jósef og Matta 



Um bloggið

Fluguveiði

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband